Frestir eru gjarnan reiknaðir í samræmi við gerðina sem getið er um í 6. lið XVI. viðauka við EES-samninginn. Gerðin er oftast nefnd „gerðin um útreikning á frestum“ en fullt heiti er reglugerð ráðsins (EBE, KBE) nr. 1182/71 frá 3. júní 1971 sem setur reglur um hvernig reikna ber tímabil, dagsetningar og fresti. Hún var birt í Stjtíð. EB L 124,8.6.1971, bls. 1.
Í XVI. viðauki EES-samningsins segir:
6. 371R1182: Reglugerð (EBE/KBE) nr. 1182 frá 3.
júní 1971 sem setur reglur um hvernig reikna ber tímabil, dagsetningar og
fresti (Stjtíð. EB nr. L 124, 8.6.1971, bls. 1). (1)
Ákvæði reglugerðarinnar skulu, að því er
þennan samning varðar, aðlöguð sem hér segir:
a) Að því er Liechtenstein varðar skulu nauðsynlegar ráðstafanir til að fara að
tilskipun þessari öðlast gildi [1. janúar 1996;]*)
*) Ákvörðun EES-ráðsins nr. 1/95 (EES-viðbætir nr. 14/01, 20.4.1995).
Gildistaka: 1.5.1995.
[...]*)
*) Bókun um breytingu á EES-samningnum, 17. mars 1993.
meðan á [aðlögunartímabilinu]*) stendur
[frestar Liechtenstein]*) og aðrir
samningsaðilar beitingu þessarar tilskipunar.
*) Bókun um breytingu á EES-samningnum, 17. mars 1993.
b) Skilja ber orðin ,,gerðir ráðsins og framkvæmdastjórnarinnar“ sem gerðir sem
vísað er til í þessum viðauka.
(1) Í 30. gr. tilskipunar 71/305/EBE og 28. gr. tilskipunar
77/62/EBE er vísað til þessarar reglugerðar og þarf hún því að vera hluti af
réttarreglunum.