fimmtudagur, 9. ágúst 2007

Stofnun húsfélags

Eins og fram kemur í 3. mgr. 10. gr. fjöleignarhúsalaga nr. 26/1994 fylgja séreignarhlutum í fjöleignarhúsi réttindi og skyldur til að taka þátt í félagsskap allra eigenda um húsið, húsfélagi. Í húsfélagi skal öllum sameiginlegum málefnum til lykta ráðið.

Í 13. gr. kemur fram að helstu skyldur eiganda séreignarhluta séu m.a. að vera í húsfélagi, fara eftir löglegum ákvörðunum þess og greiða hlutdeild í sameiginlegum kostnaði.

Samkvæmt framansögðu þarf ekki að stofna húsfélag með formlegum hætti, heldur er tilvist húsfélags óháð vilja þeirra sem í fjöleignarhúsi búa eða þeirra sem eiga séreignarhlut í slíku húsi. Þetta kemur jafnframt fram í umfjöllun félagsmálaráðuneytisins um húsfélög, þar sem segir: “Húsfélög eru til í öllum fjöleignarhúsum og þarf ekki að stofna þau sérstaklega og formlega.”

Meðal helstu formkrafna sem lúta að húsfélögum eru annars vegar reglur um húsfélagsfundi, fundur skal vera löglega boðaður, tiltekinn meirihluta þarf til ákvarðanatöku o.s.frv. Hins vegar þær sem snúa að fjármunum sem húsfélagið fer með, en til stofnunar hússjóðs þarf aðeins samþykki ¼ hluta eigenda, sbr. E-lið 41. gr. fjöleignarhúsalaga. Eins og fram kemur í umfjöllun félagsmálaráðuneytisins hefur verið litið svo á að stofna þurfi sérstakan bankareikning fyrir húsfélag, þar sem stjórn húsfélags ber að varðveita og ávaxta fjármuni húsfélagsins á ábatasaman og tryggan hátt. Hér er auðvitað gert ráð fyrir að húsfélagið eigi einhverja fjármuni. Ekki er gert ráð fyrir að skipa þurfi sérstaka stjórn fyrir húsfélög í húsum þar sem færri en sjö eignarhlutar eru, sbr. 67. gr. laganna - fara þá allir eigendur saman með það vald og þau verkefni sem stjórnin annars færi með.

Til þess að stofna sérreikning, er ráð að fá úthlutaða kennitölu hjá fyrirtækjaskrá, sjá þar til gert eyðublað: http://www.rsk.is/skjal/rsk_1702.is.pdf

Umfjöllun félagsmálaráðuneytisins: http://felagsmalaraduneyti.is/malaflokkar/husnaedismal/fjoleignarhus/nr/412

Lög um fjöleignarhús:
http://www.althingi.is/lagas/nuna/1994026.html

Fróðleikur um húsfélög hjá húseigendafélaginu: 
http://www.huseigendafelagid.is/index.php?greinar&f=6

Engin ummæli: