þriðjudagur, 28. ágúst 2007

Umsagnir HR um skipan dómara við réttinn

Úr fjölmiðlum

Mbl. Sunnudaginn 26. ágúst, 2007 - Innlendar fréttir

Þrír hæfastir í Hæstarétt

HÆSTIRÉTTUR hefur skilað umsögnum um hæfi og hæfni umsækjenda um embætti hæstaréttardómara. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins telur meirihluti réttarins þá Viðar Má Matthíasson, Þorgeir Örlygsson og Pál Hreinsson hæfasta og byggir þá niðurstöðu á mati á ýmsum þáttum.

Hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson og Jón Steinar Gunnlaugsson skiluðu séráliti. Kemur þar fram sú skoðun þeirra að þeir telji það ekki í verkahring Hæstaréttar að raða umsækjendum í hæfnisröð líkt og meirihlutinn geri. Telja þeir alla umsækjendurna hæfa til að gegna stöðu hæstaréttardómara.

Hjördís Hákonardóttir skilaði einnig séráliti þar sem hún kemst að þeirri niðurstöðu að Sigríður Ingvarsdóttir sé jafnhæf og umsækjendurnir sem meirihluti réttarins telur hæfasta. Allir umsækjendur séu því jafnhæfir.

Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, vildi í gær einungis staðfesta að umsagnirnar hefðu borist ráðuneytinu.

---

RÚV þriðjud. 28. ágúst

Hæstiréttur: Efi um fyrirkomulag dómaraskipunar

Dómsmálaráðherra skipar í vikunni nýjan hæstaréttardómara og sóttu fjórir um embættið. Ekki eru allir sammála um fyrirkomulag við skipun dómara.

Meirihluti Hæstaréttar skrifaðu meðmæli með þremur umsækjendum, einn dómari skilaði séráliti þar sem hann mælir með hinum fjórða, segir hann jafnhæfan hinum þremur en tveir hæstaréttardómarar telja hins vegar að ekki megi mæli með einum umsækjanda fremur en öðrum samkvæmt lögum. En í þeim stendur að dómsmálaráðherra eigi að leita umsagnar Hæstaréttar um hæfi og hæfni þeirra sem sækja um hæstaréttadómaraembættið.

Helgi Jóhannesson, formaður Lögmannafélags Íslands, segir að þetta fyrirkomulag þjóni litlum tilgangi og lögunum ætti að breyta.

---

Fréttatilkynning dómsmálaráðuneytisins um umsækjendur:

Umsækjendur um embætti hæstaréttardómara

2.8.2007

Þriðjudaginn 31. júlí sl., rann út umsóknarfrestur vegna embættis hæstaréttardómara sem auglýst var laust til umsóknar frá og með 1. september 2007.

Umsækjendur eru:

Dr. juris Páll Sveinn Hreinsson, prófessor og deildarforseti lagadeildar Háskóla Íslands

Viðar Már Matthíasson, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands

Þorgeir Örlygsson, dómari við EFTA dómstólinn í Luxemborg

Sigríður Ingvarsdóttir, héraðsdómari við héraðsdóm Reykjavíkur.




Engin ummæli: