þriðjudagur, 30. september 2014

Hvenær eru lög nægilega skýr?

Skilyrðið um að "lög mæli fyrir um" takmörkun ("prescribed by law"), sbr. dóm í máli Sunday Times v. United Kingdom (1979) 2 EHRR 245, málsgrein 49:
"Firstly, the law must be adequately accessible: the citizen must be able to have an indication that is adequate in the circumstances of the legal rules applicable to a given case. Secondly, a norm cannot be regarded as a "law" unless it is formulated with sufficient precision to enable the citizen to regulate his conduct; he must be able - if need be with appropriate advice - to foresee, to a degree that is reasonable in the circumstances, the consequences which a given action may entail."
Umboðsmaður Alþingis er nokkuð sammála, sbr. mál nr. 2475/1998:
"Til laga teljast jafnframt aðeins fyrirmæli sem eru það skýr að borgarinn sé fær um að breyta samkvæmt þeim, eftir atvikum að fenginni nauðsynlegri ráðgjöf, og sjá fyrir, eftir því sem eðlilegt er að ætlast til eftir atvikum hverju sinni, hvaða afleiðingar athöfn, sem um ræðir, hafi í för með sér (sjá dóm í máli Sunday Times gegn Bretlandi frá 26. apríl 1979, Ser. A No. 30 § 49)"

fimmtudagur, 16. janúar 2014

Ólögmæt sönnunargögn

Þessi niðurstaða Hæstaréttar í máli nr. 619/2013 frá 16. janúar 2014 er áhugaverð, að því er varðar gildi sönnunargagna sem aflað er með vafasömum hætti.

Héraðdsómur Suðurlands:
Brotaþoli lagði ekki fram kæru á hendur ákærða fyrr en 5. júlí 2011 eftir að C bróðir hennar hafði fengið henni í hendur nokkurs konar afsökunarbréf sem hann hafði fengið ákærða til að skrifa eftir bílferð með honum og föður ákærða um [...]. Í bréfinu lýsir ákærði því yfir að hann hefði aldrei átt að koma inn í herbergið sem brotaþoli var í og hvað þá að gera það sem hann gerði. Þetta hafi verið rangt og hann játi það. Ákærði lýsir því að hann hafi verið logandi hræddur við bróður brotaþola, hann hafi engu hótað sér þarna en hann hafi verið ógnandi í líkamsbeitingu og raddtóni og kvaðst ákærði vera viss um að ef hann gerði ekki það sem hann vildi væri hann í slæmri stöðu. Faðir ákærða tók í sama streng, hann upplifði bílferðina sem frelsissviptingu, C hafi sífellt verið í símanum og væri eins og hann væri að gefa einhverjum skýrslu um það hverjir væru í bílnum. Þá fannst honum ákærði vera undir mikilli pressu og þrýstingi af hálfu C. Þá verður ekki fram hjá því litið að C hafði afskipti af efni bréfsins með því að ætlast til þess að ákærði skrifaði meira eftir að hann hafði skrifað hluta þess. Með hliðsjón af framansögðu verður umræddu bréfi hafnað sem sönnunargagni í máli þessu.
Hæstiréttur:
Í hinum áfrýjaða dómi er rakið efni og tildrög þess bréfs sem ákærði ritaði í viðurvist bróður brotaþola. Ákæruvaldið heldur því fram að bréfið hafi sönnunargildi, en af hálfu ákærða er fallist á niðurstöðu héraðsdóms um að því verði hafnað sem sönnunargagni í málinu. 
Ekki er fyrir að fara í íslenskum lögum reglu sem útilokar að stuðst verði við gagn, sem kann að hafa verið aflað án þess að fylgt hafi verið ákvæðum laga um öflun sönnunargagna í sakamálum. Þegar litið er til aðdraganda ritunar bréfsins, sem rakinn er í héraðsdómi, verður það þó ekki talið hafa sérstakt sönnunargildi fyrir sekt ákærða, sbr. 137. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Á hinn bóginn eru ekki komin fram atriði í málinu sem leiða til þess að vefengja skuli mat fjölskipaðs héraðsdóms á trúverðugleika framburðar ákærða og brotaþola. Samkvæmt því og þeim atriðum öðrum sem rakin eru í niðurstöðu héraðsdóms verður hann staðfestur um sakfellingu ákærða.

laugardagur, 30. nóvember 2013

Fræðikerfi lögfræðinnar

Laganemi nokkur teiknaði þessa mynd haustið 2002.


mánudagur, 28. janúar 2013

Ólöglærðir

Það þýðir ekki neitt að rökræða við leikmenn um lögfræðileg álitaefni.

Þeir skilja ekki einu sinni muninn á lagalegu mati og spádómi.

föstudagur, 4. febrúar 2011

Fjallkonan veik

Mynd Halldórs Baldurssonar í tilefni af ógildinu Stjórnlagaþingskosninga,
sbr. ákvörðun HR dags. 25. jan. 2011

mánudagur, 29. nóvember 2010

Bygging húss er samfelld athöfn eða verk þótt byggt sé í áföngum

Athyglisverður dómur Hérd. Rvk. í dag þess efnis að hinir ýmsu gallar á húseign teljist eitt tjón, þ.e. eitt tjónsatvik (E-2052/2010).
Stefnendur [VÍS] telja túlkun á orðinu tjónsatvik vera þá, að um sé að ræða fleiri en eitt tjónsatvik ef hægt er að aðgreina það atvik í tíma og rúmi frá öðrum slíkum atvikum. Þannig sé eitt tjónsatvik t.d. á svölum og annað gæti verið halli á gólfi í bílakjallara. Hér verður að líta til þess að stefndi, Sturlaugur, var byggingarstjóri, þ.e. framkvæmdastjóri byggingarinnar. Hann hafði eftirlit með henni frá upphafi til loka verksins. Bygging eignarinnar er samfelld athöfn eða verk þótt byggt sé í áföngum. Stefndi, Sturlaugur, vanrækti starf sitt sem byggingarstjóri fasteignarinnar að Kambavaði 1-3 og lítur dómurinn svo á að um eitt tjón sé að ræða, þ.e. bygging fjölbýlishússins í heild. Vátryggingarupphæðin er því 7.712.600 kr. sé miðað við vísitölu 1. janúar 2007.
Sá sem skrifar þetta heyrði einmitt sögu um daginn af Sjóvá og tilraunum félagsins til að skilgreina skemmdir á bíl sem unnar voru á löngu tímabili af sama aðila sem fleiri en eitt tjónsatvik (hvert með sinni sjálfsábyrgð). Ætli það haldi nokkuð skv. þessari niðurstöðu?

Myndu skemmdir á þessum bíl teljast eitt tjóns-
atvik þótt þær verði á lengra tímabili?
Hvað með aðskilda galla í framleiðslu bílsins?
(Mynd af fml)

laugardagur, 1. maí 2010

Lagadagurinn 2010 - hvað tekur við eftir skýrslu rannsóknarnefndarinnar

Margt ágætt kom fram á málstofu sem haldin var á lagadaginn 30. apríl 2010, um hvað við tæki eftir útkomu skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis.

Fréttablaðið sagði stuttlega frá því sem fram kom í málflutningi Páls Hreinssonar framsögumanns og frummælendanna þriggja í pallborðinu, Ólafs Þ. Harðarsonar, Salvarar Nordal og Helga I. Jónssonar.

---

Fréttablaðið, 01. maí. 2010 08:30

Þrátefli aðgerðarleysis varð Íslandi dýrkeypt

Páll Hreinson, Salvör Nordal, Ólafur Þ. Harðarson og Helgi I. Jónsson héldu erindi og sátu fyrir svörum í gær á málstofu um eftirmál hrunsins.Fréttablaðið/GVA
Páll Hreinson, Salvör Nordal, Ólafur Þ. Harðarson og Helgi I. Jónsson héldu erindi og sátu fyrir svörum í gær á málstofu um eftirmál hrunsins.Fréttablaðið/GVA
Fjölmenni mætti í gær á málstofu félaga lögfræðinga, lögmanna og dómara um það hvað taki við í íslensku samfélagi eftir að skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis hefur verið gefin út.
Páll Hreinsson, hæstaréttardómari og formaður rannsóknarnefndarinnar, sagði í framsögu á málstofunni að orsakanna fyrir bankahruninu væri aðallega að leita í áhættu sem bankarnir tóku á árunum 2004 til 2006. „Í þessum hraða vexti sprengdu bankarnir innra eftirlit og gæðakerfi sín," sagði Páll sem kvað engan vafa á því að bankarnir hefðu farið alltof geyst í skuldabréfaútgáfu á erlendum mörkuðum.
Páll sagði að þegar ljóst hafi verið hvert stefndi hafi stjórnkerfið ekki brugðist við til að lágmarka tjónið í óumflýjanlegu hruni heldur hafi Seðlabankinn og stjórnarráðið bent hvort á annað. „Þetta endaði því í þrátefli aðgerðarleysis," lýsti Páll stöðunni.
---
Eftirfarandi eru sumir af þeim punktum sem ég tók niður á málstofunni, þeir eru ekki endilega orðrétt frásögn af því sagt var:

PH tók í upphafi fram að erindi sitt endurspeglaði hans persónulegu skoðanir.
- Orsakir atburðanna 7., 8. og aðfaranótt 9. okt. 2008 liggja í áhættum sem teknar voru á árunum 2004-2006.
- Von er á holskeflu mála vegna atburðanna og efla þarf dómstólana til þess að taka við þeirri flóðbylgju.
- Kalla verður þá sem "brutu af sér" til ábyrgðar, láta þá axla hana. Sérstakur saksóknari nefndur í því samhengi, auk þess skilanefndir og aðrir einkaaðilar.
- Í umræðum undir lok málstofunnar kom fram sú skoðun að það sem hér var í gangi verði ekki talið "séríslenskt", en það hafi verið af stærri skala en annars staðar. Aðgerðirnar í kjölfar hrunsins skeri sig einnig úr, erlendis hafi bönkum verið bjargað en því var ekki að skipta hér.
- Talið barst að framtíð íslenskrar stjórnsýslu og meðal þess sem PH telur til vandamála sem þar er að finna eru smæð hennar og sú staðreynd að mikilvægar ákvarðanir eru teknar af fáum einstaklingum. Stjórnsýslunni haldist auk þess illa á hæfu fólki, sér í lagi ætti þetta við um stjórnarráðið.
- Lögin voru notuð að því marki sem hentaði, hluti af röngu undirliggjandi gildismati í umræðunni, t.a.m. þegar bent er á að eitthvað sé löglegt til svars við spurningunni um hvort það sé skynsamlegt.

SN ræddi m.a. um ábyrgð sem hvílir á 'fagfólki' á borð við lögfræðinga og endurskoðendur.
- Lagahyggja og tæknileg nálgun hefur að hennar mati verið vandamál..

ÓÞH ræddi um uppbyggingu stjórnkerfisins, þ. á m. stjórnmálanna, ábyrgð sé óskýr innan ríkisvaldsins.
- Í umræðum ræddi ÓÞH einnig um lagahyggjuna og nefndi að margir virðist líta svo á að pólitísk ábyrgð sé sú sama og lagaleg ábyrgð. Góðir siðir fari hins vegar ekki alltaf saman við lagaskyldur.