Umboðsmaður fræðir okkur, einkum í áliti í máli 1437/1995, um hugtakið þinggjöld:
Í bréfi [fjármála]ráðuneytisins til mín, [er] tekið fram "að virðisaukaskattur hefur ekki verið talinn falla undir þinggjaldahugtakið". Í þessu bréfi skilgreinir fjármálaráðuneytið þinggjöld svo:
"Með hugtakinu þinggjöld hefur löngum verið átt við þau gjöld til ríkissjóðs sem lögð voru á og innheimt á manntalsþingum. Eftir að þau þinghöld voru aflögð hefur verið litið svo á að þau gjöld sem lögð eru á einu sinni á miðju ári séu þinggjöld. Þannig falla undir þinggjaldahugtakið tekjuskattur, eignarskattur, sérstakur eignarskattur, gjald í Framkvæmdasjóð aldraðra og tryggingagjald. Virðisaukaskattur er á hinn bóginn lagður á 6 sinnum á ári og fellur því ekki undir þinggjaldahugtakið."
Í skattalöggjöfinni virðist ekki fyrir að fara almennri skilgreiningu á hugtakinu þinggjöld, nema í 2. mgr. 35. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, þar sem segir svo: "Skattar er renna til ríkissjóðs nefnast þinggjöld en skattar til sveitarsjóða sveitarsjóðsgjöld." Að mínum dómi getur þessi skilgreining, sem sett er í sambandi við uppgjör staðgreiðslu við almenna álagningu og meðferð mismunar, sem þá kann að koma fram til innheimtu eða endurgreiðslu, ekki skorið úr um álitaefnið.
Í sögulegu samhengi merkir hugtakið þinggjöld þau gjöld, sem innheimt voru af innheimtumönnum ríkissjóðs á manntalsþingum og færð voru í manntalsbækur. Eins og kunnugt er, var hlutverk manntalsþinga fjölþættara, enda voru þau lengi og fram á síðustu tíma lögboðin dómþing, sbr. 2. gr. tilskipunar frá 15. ágúst 1832, viðvíkjandi rjettargangsmátanum við undirrjettina á Íslandi, í öðrum málum en þeim, sem viðvíkja illvirkja- og opinberum pólitísökum, og 3. gr. tilskipunar frá 24. apríl 1833, um afsalsbrjef og pantsetningar á Íslandi, svo og 38. gr. laga nr. 85/1936, um meðferð einkamála í héraði, er gilti þar til núgildandi réttarfarsskipan tók gildi hinn 1. júlí 1992, sbr. lög nr. 91/1991, um meðferð einkamála. Manntalsþing voru haldin árlega og var heiti þeirra dregið af manntali fyrir skattheimtu. Manntalsþingin voru víðast hvar haldin að vorinu í maí og júnímánuðum, [...].
Við lok hins forna skattkerfis á ofanverðri 19. öld voru gjöld þessi: Gjaftollur, konungsskattur (skatturinn), lögmannstollur, manntalsfiskur og tíund (konungstíund). Árið 1877 var sett ný skattalöggjöf, þar á meðal fyrstu lögin um tekjuskatt, er leysti af hólmi hið aldagamla og úr sér gengna skattkerfi. Í hinum nýju lögum var kveðið á um, að skattarnir skyldu innheimtir af sýslumönnum og bæjarfógetum á manntalsþingum ár hvert, sbr. t.d. 27. gr. laga um tekjuskatt frá 14. desember 1877. Í 42. gr. laga nr. 74, 27. júní 1921, um tekjuskatt og eignarskatt, var mælt svo fyrir, að lögreglustjórar innheimtu skatta þessa á manntalsþingum ár hvert. Hliðstætt ákvæði var síðan að finna í almennum lögum um tekjuskatt og eignarskatt, [...].
Að því er skattheimtu snertir breyttist hlutverk manntalsþinga smám saman, uns þau höfðu enga raunhæfa þýðingu í þeim efnum og það áður en þessu hlutverki þeirra var formlega rýmt út úr löggjöfinni. Til upplýsinga um innheimtu þinggjalda á manntalsþingum má geta þess, að með 7. tölul. 5. gr. laga nr. 118, 27. desember 1990, um brottfall laga og lagaákvæða, var fellt úr gildi Opið bréf um nokkrar ákvarðanir þeim til trausts, er þinggjaldi eiga að lúka frá 10. febrúar 1847. Í þessu opna bréfi var mælt svo fyrir, sbr. 1. gr., að hver sýslumaður væri skyldur til að hafa á manntalsþingum manntalsbók þá, er amtmaður hefði gert löggilda, og albúin skyldi vera gjaldamegin fyrir þing og "heimta eftir henni þinggjaldið". Í 2. gr. sagði meðal annars svo: "Svo skal og hver sá, er þinggjaldi á að lúka, hafa kvittunarbók, og sýslumaður rita þar í, hvað goldið sé á þingum og endranær, er eitthvað er greitt af þinggjaldinu, og allt sem gjalda skal eftir manntalsbókinni."
Samkvæmt því, sem hér að framan hefur verið rakið, hétu þau opinberu gjöld, sem innheimt voru af innheimtumönnum ríkissjóðs á manntalsþingum, frá fornu fari þinggjöld. Hvað féll undir þetta hugtak réðst vitaskuld af því, hvaða skattar giltu samkvæmt skattalöggjöfinni á hverjum tíma, og ljóst er, að önnur gjöld féllu síðar undir þetta hugtak, svo sem tekjuskattur og eignarskattur, en var við gildistöku opna bréfsins frá 1847, þegar hin fornu manntalsbókargjöld voru við lýði.
Ég tel, að ekki verði hjá því komist, að hafa nokkra hliðsjón af þessari forsögu við skýringu á hugtakinu þinggjöld, þar sem það kemur nú fyrir í löggjöfinni.
---
Eftir [...] breytingar á skuldajafnaðarákvæðum A- og B-liða 69. gr. [tekju- og eignarskatts]laga nr. 75/1981 [...] er hugtakinu þinggjöldum ekki lengur fyrir að fara. (álit 1538/1995)
---
Í gömlu fræðsluefni RSK segir:
Álögð gjöld (þinggjöld) eru tekjuskattur, eignarskattur, sérstakur eignarskattur, búnaðargjald, iðnaðarmálagjald, jöfnunargjald alþjónustu, tryggingagjald og gjöld því tengd.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli