miðvikudagur, 27. maí 2009

Hefðir á vinnustað - ígildi kjarasamnings

Athyglisverð sending barst frá BHM nýlega vegna breytts efnagagsástands og sparnaðaraðgerða atvinnurekenda. Í bréfi bandalagsins segir m.a.:

Nokkuð er um það að vinnuveitandi/stjórnvöld séu að breyta fyrirkomulagi á störfum og greiðslum sem hafa verið við líði í langan tíma og um hefur skapast viss hefð og venja. Starfsmenn hafa mátt treysta því að greitt yrði í samræmi við þá venju sem skapast hefur. Ef um er að ræða framkvæmd sem hefur verið fylgt eftir mjög lengi og hún orðin rótgróin, þá er mikilvægt að hafa það í huga að þeirri venju verður ekki breytt nema við gerð kjarasamnings.

Vinnuveitandi getur ekki einhliða sagt upp samkomulagi sem fellur undir ofangreint. Þessu til stuðnings er niðurstaða Félagsdóms í máli nr. 13/2002. Þar segir orðrétt: Stefnandi mátti treysta því við gerð síðasta kjarasamnings milli aðila, sem tók gildi 1. apríl 2001, að greitt yrði fyrir útköll til samræmis við þá venju sem skapast hafði samkvæmt framansögðu. Verður slíkri venjubundinni framkvæmd almennt ekki breytt nema með nýjum kjarasamningi milli aðila. Getur þar engu breytt hvernig viðlíka samningsákvæði eru eða hafa verið túlkuð af öðrum stéttarfélögum.

Þessi dómur getur verið fordæmisgefandi á öðrum vinnustöðum þar sem verið er að segja upp einhliða, venjum og hefðum sem skapast hafa á vinnustöðum og starfsmenn mátt treysta að haldi þar til nýr samningur er gerður.

Efni bréfsins er einnig birt á heimasíðu BHM.
[smellið á myndina til að sjá bréfið í fullri stærð.]

Engin ummæli: