Stefnendur [VÍS] telja túlkun á orðinu tjónsatvik vera þá, að um sé að ræða fleiri en eitt tjónsatvik ef hægt er að aðgreina það atvik í tíma og rúmi frá öðrum slíkum atvikum. Þannig sé eitt tjónsatvik t.d. á svölum og annað gæti verið halli á gólfi í bílakjallara. Hér verður að líta til þess að stefndi, Sturlaugur, var byggingarstjóri, þ.e. framkvæmdastjóri byggingarinnar. Hann hafði eftirlit með henni frá upphafi til loka verksins. Bygging eignarinnar er samfelld athöfn eða verk þótt byggt sé í áföngum. Stefndi, Sturlaugur, vanrækti starf sitt sem byggingarstjóri fasteignarinnar að Kambavaði 1-3 og lítur dómurinn svo á að um eitt tjón sé að ræða, þ.e. bygging fjölbýlishússins í heild. Vátryggingarupphæðin er því 7.712.600 kr. sé miðað við vísitölu 1. janúar 2007.Sá sem skrifar þetta heyrði einmitt sögu um daginn af Sjóvá og tilraunum félagsins til að skilgreina skemmdir á bíl sem unnar voru á löngu tímabili af sama aðila sem fleiri en eitt tjónsatvik (hvert með sinni sjálfsábyrgð). Ætli það haldi nokkuð skv. þessari niðurstöðu?
![]() |
Myndu skemmdir á þessum bíl teljast eitt tjóns- atvik þótt þær verði á lengra tímabili? Hvað með aðskilda galla í framleiðslu bílsins? (Mynd af fml) |
Engin ummæli:
Skrifa ummæli