Þau eru athyglisverð ummæli við frétt þess efnis á Vísi.is, en þar skrifar nafnlaus aðili:
"Þá er páll (rekan) kominn í sandkassan, hjá bangsa. Passaðu þig Páll það er búið að kúka í sandinn, ekki borðan." [sic]
Viðkomandi hefur augljóslega ekki mikið álit á starfi Hæstaréttar, en óljóst er þó hvað átt er við með viðnafninu rekan. Ætli verið sé að líkja hinum nýja dómara við Ronald Reagan, eða kemur Páll hinum nafnlausa aðila fyrir sjónir sem einhver sem mun láta reka á reiðanum í nýju starfi?
Kannski Páll muni reka niður staur málefnalegra starfshátta og rökfestu í sandkassanum?

Engin ummæli:
Skrifa ummæli