föstudagur, 3. ágúst 2007

Sjúkratryggingar íslenskra námsmanna sem flytja heim frá útlöndum

Undanþágur frá lögum eru sérstök fyrirbæri sem oftar en ekki byggja einum of mikið á mati stjórnvalda.

Ein heimild til veitingar undanþága, í tilfellum sem í raun ættu ekki að krefjast neinskonar tilslakana heldur ættu að vera lögfest, er að finna í 8. gr. reglugerðar um framkvæmd almannatrygginga:
Undanþágur vegna sjúkratrygginga.
8. gr.
Heimilt er að veita ótryggðum einstaklingum undanþágur frá ákvæðum 32. gr. laga nr. 117/1993 um almannatryggingar um að einstaklingar hafi verið búsettir á Íslandi í sex mánuði áður en þeir teljist sjúkratryggðir, í eftirfarandi tilvikum:



[...]


d)Þegar um er að ræða námsmann sem flutt hefur lögheimili sitt frá Íslandi á námstíma vegna náms erlendis og flytur aftur til Íslands innan sex mánaða frá námslokum.


[...]

Sjúkratryggingadeild veitir ofangreindar undanþágur og gefur út sérstakt skírteini ef skilyrðum er fullnægt. Umsókn skal fylgja læknisvottorð og upplýsingar um tryggingar.

32. gr. laga um almannatryggingar 117/1993 er nú 37. gr. laga um almannatryggingar 100/2007, en þar segir:
37. gr. Sjúkratryggður er sá sem hefur verið búsettur á Íslandi, sbr. II. kafla, a.m.k. síðustu sex mánuðina áður en bóta skv. 1. mgr. 48. gr. er óskað úr sjúkratryggingum, sbr. 3. mgr., [...].

Engin ummæli: