Úrskurður yfirskattanefndar nr. 314/2007 – Opinber gjöld - frádráttur á móti námsstyrk
Í innsendri leiðréttingarbeiðni á skattframtali kvaðst kærandi hafa gleymt að geta um greidd skólagjöld í greinargerð sem fylgdi hefði skattframtalinu um frádrátt á móti styrk til náms, rannsóknar- eða vísindastarfa. Í úrskurði skattstjóra um málið tók hann fram að styrkir sem málið snérist um væru skattskyldir skv. 2. tölul. A-liðar 7. gr. TSKL. Með leiðréttingarbeiðni sinni hefði kærandi óskað eftir frádrætti á móti styrkjum vegna skólagjalda við Exeterháskóla. Skattstjóri taldi að kostnaður vegna náms sem lyki með prófgráðu væri persónulegur kostnaður sem kæmi ekki til frádráttar.
Yfirskattanefnd féllst á það með kæranda að henni beri frádráttur beins kostnaðar skv. 2. mgr. 30. gr. TSKL frá umræddum styrkjum, sbr. m.a. úrskurðaframkvæmd, enda hafi verið sýnt fram á fullnægjandi gögn því til sönnunar. Var því fallist á frádrátt sem nemur styrkfjárhæðinni.
---
Eftirfarandi leiðbeiningar er að finna á vef RSK:
2.6.4 | Frádráttur á móti náms- rannsóknar- og vísindastyrkjum |
Reitur 149: Frádráttur á móti náms-, rannsóknar- og vísindastyrkjum. Ef gerð er krafa um frádrátt vegna beins kostnaðar á móti náms-, rannsóknar- eða vísindastyrkjum, skal færa frádráttinn í þennan reit. Frádráttur þessi getur ekki orðið hærri en styrkur sem talinn er til tekna í reit 131 í kafla 2.3. Heimilt er að draga frá kostnað á móti styrknum, þó ekki vexti af skuldum, afföll, gengistöp og fyrningu eigna. Gera skal sundurliðaða grein fyrir þessum kostnaði á sérstöku yfirliti sem fylgja skal framtalinu (sérstakt undirblað á vefframtali sem opnast þegar smellt er á Færa frádrátt). Heildarkostnaður skv. yfirlitinu færist síðan í reit 149. Ekki er heimilt að draga kaupverð tækja, s.s. tölva og tölvubúnaðar, frá styrkjum. Ef um atvinnurekstur er að ræða skal gera grein fyrir tekjum og frádrætti á RSK 4.10 eða RSK 4.11 ef rekstrartekjur eru hærri en 500.000 kr. |
Engin ummæli:
Skrifa ummæli